Skattarnir hafa lækkað!

Ef ég þekki yfirvöld og Steingrím fjármálaráðherra rétt þá verða þau fljót að snúa þessu í skattalækkun!

Sennilega verður sagt:

  • Bensínskattar að nafnvirði frá 2008 hafa dregist saman miðað við áætlað framtíðarvirði 2015
  • Miðað við VLF, þar sem öll önnur framleiðsla en álframleiðsla er dregin frá, hefur hlutfall á bensínsköttum dregist saman
  • Skattar á eldsneyti hafa ekki fylgt launavísitölu dómara
  • Skattar á eldsneyti eru alltof lágir á Íslandi því það er til a.m.k. eitt ríki í heiminum sem er með hærri skatta
  • Heildartekjur af bensíni í ríkissjóð hafa lækkað í hlutfalli við verðmætasköpun í raforkuframleiðslu á Íslandi frá árinu 1995.
  • ... og svo framvegis

Þetta eru auðvita allt kjánalegar staðreyndir en svona eru yfirvöld að reyna að plata hvern og einn daglega.


mbl.is Bensínskattar hafa aldrei verið jafnháir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband