Munu geimverur gera innrás um leið? :-)

Ég hef alltaf gaman af heimsendaspám. Fyrir tilviljun rakst ég á fróðleik um Elenin halastjörnuna sem mun vera mjög nálægt jörðu í lok október 2011. Þá mun víst allt fara úrskeiðis hér á jörðinni (jarðskjálftar, flóð, eldgos, umpólun og þess háttar). Það fylgir ekki sögunni að geimverur muni gera innrás um leið - en hver veit?

Fyrir þá sem hafa gaman af þessu líka þá er hægt að leita eftir "Comet Elenin" á Google og þá koma allar "staðreyndir" í ljós!

Alien


mbl.is Lofsteinn milli jarðar og tungls
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þú ætlar semsagt að missa af hinum kristna heimsendi.. maí 21 :)

Uppl svo þú verðir nú ekki skilin eftir af Sússa ;)
http://doctore0.wordpress.com/2011/04/25/just-to-remind-you-of-the-rapture-and-the-anti-rapture/

doctore (IP-tala skráð) 5.5.2011 kl. 15:13

2 Smámynd: Sumarliði Einar Daðason

haha...  ég hefði örugglega misst af því hefðir þú ekki bent mér á þetta. Eins gott að maður verði búinn undir þetta brottnám með bréfpoka á höfðinu.

Sumarliði Einar Daðason, 5.5.2011 kl. 15:46

3 identicon

Samkvæmt nýjustu útreikningum þá fer loftsteinninn YU 55, sem er um 400 m í þvermáli framhjá jörðu þann 8. nóvember 2011.  Fjarlægðin verður um 85% af fjarlægðinni millu jarðar og mána.  Annar stór loftsteinn, 99942 Apophis og er álíka stór og YU 55, mun fara nálægt jörðu þann 13. apríl 2036.  Líkurnar á að hann lendi á jörðinni eru um 1:250.000 meiri líkur en að fá  5 réttar í laugardagslottóinu sem eru 1:650.000.

Jóhannes (IP-tala skráð) 5.5.2011 kl. 15:56

4 identicon

Hmm.. hljómar eins og Nibiru. (Wikipedia: The Nibiru collision is a supposed disastrous encounter between the Earth and a large planetary object (either a collision or a near-miss))

Rúnar (IP-tala skráð) 5.5.2011 kl. 16:04

5 identicon

Fyndið hvernig það leikur líka svo mikill vafi um stærðina á þessum steinum, í heimsendaspánum. Hef séð tölur um Elenin sem eru allt frá raunverulegum tölum up í *tvöfalda stærð Júpiters.*

Brynjar Björnsson (IP-tala skráð) 5.5.2011 kl. 22:14

6 Smámynd: Sumarliði Einar Daðason

Talandi um Júpiter, ég rakst á eina heimasíðu fyrir nokkru þar sem einhver stjörnufræðingur heldur því fram að þegar Jörð, Sól og Júpiter eru í beinni línu þá verða alltaf jarðskjálftar á jörðinni yfir sjö á richter. Hann kom með býsna góð dæmi.

Þannig að ef Elenin er svona stór og kemur inn í sólkerfið okkar þá er eins gott að geimverurnar eru komnar til þess að bjarga okkur.

Sumarliði Einar Daðason, 6.5.2011 kl. 10:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband