26.3.2019 | 18:15
Falla skattaskuldir niður með skuldafangelsi?
Ég er svo blautur á bakvið eyrun að ég þekki ekki til þessa málaflokks.
Ef einhver situr inni vegna skattaskulda eins og í þessu tilfelli, fellur þá skuldin niður? Eða er þetta bara auka refsing og krafan ennþá til staðar?
Sakfelldur fyrir meiri háttar skattabrot | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
24.3.2019 | 14:32
Við þurfum fleiri skip og þyrlur fyrir Landhelgisgæsluna
Þetta atvik í Noregi með Viking Sky hlýtur að kenna okkur að við þurfum fleiri skip eins og Þór fyrir Landhelgisgæsluna og fleiri þyrlur. Bara á Akureyri er áætlað að 209 skemmtiferðaskip heimsæki Akureyri árið 2019. Með um 159.238 farþega fyrir utan áhafnir.
Þó það er að mestu um sumartímann þá kemur það ekki í veg fyrir svipað ástand gæti gerst eins og í Noregi.
Svo eru sjúkrahúsin ekki tilbúin að taka við miklum fjölda, hvorki á Akureyri né í Reykjavík. En sennilega er gert ráð fyrir fjöldahjálparstöðvar, eins og til dæmis ef stór flugslys verða.
Okkur er öllum brugðið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Samgöngur | Breytt 25.3.2019 kl. 13:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)