Brakið lenti í Kyrrahafi

Nýjustu upplýsingar frá NASA eru á þá leið að brakið af gervitunglinu hafi lent í Kyrrahafið án þess að valda tjóni (nema kannski að hvalur hafi verið að anda og brak lent á honum eða eitthvað álíka).


mbl.is Gervitunglið lent
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Emil Hannes Valgeirsson

Ég held að það sé ólíklegt að brakið af gervitunglinu hafi lent í Kyrrahafinu þótt það hafi komið þar inn í lofthjúpin. Síðustu ljósbrotin sáust sennilega yfir Bandaríkjunum en svo geta einstök brot jafnvel ferðast mun lengra áður en þau falla.

Emil Hannes Valgeirsson, 24.9.2011 kl. 09:52

2 Smámynd: Sumarliði Einar Daðason

Um leið og brakið fer inn í lofthjúpinn þá byrja hlutirnir að leita lóðrétt niður til jarðar í stað þess að halda stefnu sinni. Það er talað um að brakið gæti dreifst á um 1.000 km svæði (jafnvel minna).

Kyrrahafið liggur upp við Bandaríkin og er ekki ennþá búið að tilgreina hvar á Kyrrahafinu brakið lenti. Því er það ekkert sem segir að þetta hafi ekki sést yfir eða frá Bandaríkjunum.

Sumarliði Einar Daðason, 24.9.2011 kl. 11:32

3 Smámynd: Sumarliði Einar Daðason

Brakið lenti að mestu þar sem græni punkturinn á Kyrrahafinu er. Línan sýnir ferilinn þegar gervitunglið var að hrapa.

Heimild: http://www.space.com/13098-nasa-falling-satellite-uars-ocean-crash-site.html

Sumarliði Einar Daðason, 28.9.2011 kl. 08:21

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband